Auglýsing

Fallerí, fallera !

17. nóvember 2008 klukkan 20:07
Já ég verð nú bara að blogga smá og láta ykkur aðeins vita hvernig lífið leikur við okkur hérna í Danmörku. Við höfum það bara voða fínt og allt gengur sinn vana gang. Ég er bara alltaf í Bygma og það er bara mylljandi gangur þar að vanda enda ekki að spyrja að þvíWink. Já svo gengur bara vel í ræktinni eftir mígrenið sem fjölskylda mín kom með handa mér fyrir nokkrum vikum hehehe Laughing. Já auðvitað slær það mann svolítið út af laginu að fá svona mígreni en það þýðir ekkert annað en að lenda bara í báðar lappirnar og byrja aftur af miklum krafti Cool. Þannig að nú heldur maður bara áfram að hamast því það þíðir ekkert annað þegar að maður keppir að mörgum og háleitum markmiðum. 


Fyrir þá sem ekki vita þá snæddi ég með ekki ófrægari mönnum en máttarstólpum franska landsliðsins þeim Tiery Omaer og Nikolaj Karabatich (já ég veit að þetta er kolvitlaust skrifað og mér gæti ekki verið meira sama um það). En já þarna voru einnig fleiri frægir svo sem Florian Kherman Cristian Zeitz og að ógleimdum Hálfdáni Gíslasyni, Þorkeli Gunnari Sigurbjörns Hreiðarssyni og R.D.B Laughing . Þetta var yndisleg ferð í alla staði og vil ég nýta tækifærið og þakka samferðamönnum mínum og vinum kærlega fyrir vel lukkaða ferð og frábæra heimsókn. Ég vil einnig þakka mömmu, pabba og Erlu systir fyrir að heimsækja mig og Andreu um dagin, það var mjög gaman að fá ykkur í heimsókn og ykkur er öllum boðið í heimsókn í herbergið mitt í Hraunbæ 120 þegar að ég kem heim takk. Thað er blátt með fullt að metalíum Cool. Þessar heimsóknir yljuðu mér svo sannarlega um hartarætur og gott að finna hvað maður á góða að.




Kær kveðja sxxxxxi strákurinn í danmörku.
 
Andrea Björk Hannesdóttir
5 athugasemdir

Velgengni

25. október 2008 klukkan 23:12

Af okkur er allt gott að frétta. Ég er bara að vinna á fullu og það er bara fínt. Um daginn var ég sendur í sendiför hálfa leiðina til Árhus og það var mjög mikið ævintýri þar sem ég var bara einn á ferð og rétt rataði í íbúðina mína og í vinnuna. Á endanum komst ég samt heill á húfi á leiðarenda og til baka. Verð að segja að ég hlakka mjög mikið til að fá útborgað og sjá hvað það verður mikið. Smile Handboltinn gengur líka mjög vel og greinilegt að æfingarnar og stundirnar í ræktinni hafa skilað sér. Ég spilaði seinasta fimmtudag og skoraði 6 mörk úr jafn mörgum tilraunum, þrátt fyrir það töpuðum við en þó svo að ég segi sjálfur frá þá var ekki við mig að sakast. Við Andrea erum alveg rosa dugleg í ræktinni ásamt Sunnu og Hvata sem eru einnig að taka mjög vel á því.

Ég sá drauma handboltaskóna mína um daginn. Þetta eru rauðir nike skór og alveg sama týpan og ég átti einu sinni. Þessir skór sem ég átti einu sinni voru bestu skór sem ég hef átt og þetta er bara ný týpa af þeim bara Vals rauðir. Ég verð að segja að ég hef aldrei misst svefn yfir skóm áður en það er hálfpartinn að fara að gerast  Laughing. Þessir skór eru uppseldir á Jótlandi og ég ætla að pannta þá af netinu þegar að ég fæ útborgað. Ekki það að ég eigi ekki pening núna bara það að það er ódýrara og hagstæðara að kaupa þá með því að borga með dönskum pening.



Það er allt voða gott hér í Danmörku en þó verð ég að segja að ég sakna Íslands svolítið þar sem það er orðinn ansi langur tími þar sem maður hefur séð ættingja og vini. Get ekki sagt annað en það verður ljúft að koma heim Wink. Og ég vil fá komment á þetta blogg takk fyrir Wink


Kveðjur á klakann
Arnar Cool

Andrea Björk Hannesdóttir
9 athugasemdir

Iceland here I come!

11. október 2008 klukkan 18:33
Hæhæ!

Já núna ætlar Andrea Björk Hannesdóttir að blogga smá. Það er nú mikið búið að gerast síðan ég bloggaði seinast.

Ég er byrjuð í vinnunni og er búin að vinna í 2 vikur. Þetta er fín vinna en doldið erfitt að hjálpa kúnnum og afgreiða þá á dönsku. Eftir að ég var búin að vinna í viku þá var ég dregin inn á skrifstofu og sagt að þetta gengi ekki, því að ég geti ekki tjáð mig nógu vel á dönsku. Ég varð mjög hissa þar sem ég er búin að læra alveg heilan helling og þarf bara smá tíma. En ég fékk viku í séns og stóð mig alveg gríðalega vel að mínu mati. Ég afgreiddi fullt af kúnnum og það var bara voðalega sjaldan sem að ég skildi ekki hvað fólkið sagði við mig. En svo var ég tekin inn á skrifstofu aftur í dag og sagt að þetta gangi ekki. Ojæja.. svona er það. Víst að ég er búin að missa þessa vinnu, Arnar ætlar ekki að vera í DK, Sunna og Hvati ætla að fara til Bandaríkjana í febrúar og flestir af þeirra vinum sem ég þekki líka ætla líka að fara í febrúar í starfsnám svo að ég ætla bara að koma heim og fara að vinna á Íslandi. Þá mun ég líka safna meiri pening en upprunalega planið að fara út til að læra dönsku betur fyrir námið er nánast fyrir bí.. en ég læri nú eitthvað á þessum 4 mánuðum.

Já já svona er það. Og já! fyrir þá sem vita það ekki þá beit Degu (dýr sem lýtur eins út og mús) mig í vinnunni um daginn og ég þurfti að fara á slysó og eitthvað krapp því að puttinn minn varð tvöfaldur. Svo að núna er ég á sýklalyfjakúr sem er geggjað fjör! NOT!

Hahah já ég er eitthvað voðalega óheppin núna! En mér finnst samt alveg frábært hérna í DK. Rosalega skemmtilegir krakkar sem ég er búin að kynnast en ég verð nú að segja að Danir eru nú ekki ein lige glad og þeir gefa sig út fyrir. Mér finnst skemmtilegasta fólkið hérna vera Íslendingarnir (of course) og Belgarnir. Ekkert of ósvipaðir okkur, algjör partýdýr en mjúk inn við beinið hehe. 

En nóg af mér í bili. Ég vil bara óska öllum velfarnaðar í kreppunni, verum öll skynsöm núna. 

En við sjáumst í desember!
Kærlig hilsen
Andrea Björk

P.S. ég er búin að setja inn myndir af íbúðinni okkar! Endilega kíkið :) 
Andrea Björk Hannesdóttir
2 athugasemdir

Eye of the tiger!!!

05. október 2008 klukkan 21:15
Já nú er ég byrjaður í hriiiiikalegu átaki. Ég fer í ræktina á hverjum degi svo að allir heima verða bara að taka sig til og stækka hurðarnar sínar hehe ( til þess að ég komist inn sko ) Glottandi.  Nei nei markmiðið er að verða í aðeins betra formi heldur enn þegar að ég fór út. Andrea stendur sig líka alveg eins og hetja og er mjög dugleg að æfa og á hún skilið mikið hrós skilið fyrir það. Ég tók ansi góðar myndir af mér í upphafi átaksins svo að hægt sé að sjá árangurinn, aldrei að vita hvort maður hendi þessum myndum hingað inn ef fólk er spakt hehehehe nei ég segi bara svona Hlæjandi. Annars gengur bara allt vel. Ég er ekki með skemmd eins og haldið var í byrjun þannig að mér er mjög létt þar sem ég hef ALDREI fengið skemmd. Það er sumt sem maður gleymir aldrei úr sinni æsku og eru orðin hennar mömmu mér mjög minnisstæð þegar að hún sagði að tennurnar í mér væru perlurnar mínar og ég ætti að fara vel með þær og passa þær vel. Síðan þá hef ég alltaf verið duglegur að bursta og get hreinlega ekki sofnað ef ég er ekki búinn að bursta. 

Ég ætla að henda inn einu grínljóði hér lesendum til gagns og einnig nokkurs gamans.


Nú erum við í danaveldi
það er ávallt gaman.
Með boltanum ég danan geldi
við skemmtum okkur saman.


Næsta erindi kemur með næsta bloggi.


Kv Arnar ;p
Andrea Björk Hannesdóttir
4 athugasemdir

Bæði byrjuð að vinna!

24. september 2008 klukkan 20:49
Já kærir hálsar! Við erum loksins bæði byrjuð að vinna!

Reyndar byrja ég ekki fyrr en á mánudaginn í dýrabúðinni en Arnar byrjaði í þessari viku í Bygma (sem er eins og Byko heima). Við höfum það rosalega fínt, erum á fullu í ræktinni. Arnar fer nánast á hverjum degi og svo er hann að æfa handbolta 3svar í viku svo að hann verður Arnar grant og ég Magga massi þegar við komum heim um jólin ;) haha! Svo er ég líka komin með smá auka vinnu, 2 tímar á viku að þrífa hús.

Annars voða lítið að frétta.. ég er að fara að byrja í dönskuskólanum. Búin að taka próf sem segir hvar ég stend og ég stóð mig bísna vel að mínu mati! Konan sem sat yfir mér í prófinu á húsið sem ég er að fara að þrífa. Þessi dönskuskóli er voðalega sniðugur.. maður borgar 250 Dkk fyrir eitt skref sem tekur u.þ.b. 2-3 mánuði. Námskeiðið kostar í raun miklu meira en Kolding Kommunan borgar fyrir hitt! Jeyj! Svo að maður verður að standa sig og mæta, annars þarf maður að borga allt!

Við fáum vonandi bráðum netið.. gengur voða hægt! Komumst samt sem betur fer af og til á netið hjá Sunnu og Hvata.

Ég byð að heilsa ykkur öllum, ég sakna ykkar allra! Hafið það gott á Fróninu ;)

Venlig hilsen
Andrea Björk
Andrea Björk Hannesdóttir
4 athugasemdir

Víkar

16. september 2008 klukkan 16:58
Já við erum búin að skrá okkur hjá stofnun  sem heitir Vikar. Þessi stofnun skaffar fólki vinnu hér og þar og hjálpar fólki að fá vinnu. Ég er einnig að fara í atvinnuviðtal hjá byggingarvöruverslun hér rétt hjá þar sem við eigum heima. Þetta fyrirtæki heitir Bygma og ég myndi vera að vinna á lager þar sem mér líst bara vel á. Við fórum í ræktina í dag og tókum ágætlega á því. Fyndið að segja frá því að afgreiðsluborðið í ræktinni er eiginlega alveg í miðjum tækjasalnum hehehe og maður labbar bara beint inn í tækjasalinn þegar að maður kemur inn. Þetta minnir mig bara smá á staðinn þar sem Rocky æfði hehehe. Mér líst bara vel á þetta þar sem að þetta er bara lítið og persónulegt og maður fær ekki menningarsjokk á því að koma þarna inn, eins og maður fær í ónefndri stöð á Íslandi Hlæjandi

Allt gengur bara vel og stefnan er að koma í fínu formi heim á klakann. Reyndar eru þessir baunar að láta mig spila í 3. deildinni en það er allt í lagi ég verð bara að sýna þeim hvað í mér býr. Ef ég verð ennþá að spila í 3. deildinni um jólin þá er þetta mitt álit á þjálfurunum; Þeir eru bara einhverjir bensínsölukallar í danmörku hehe sem hafa ekki hundsvit á handbolta. Ekki unnu þeir nú til silfurverðlauna á ólympíuleikunum Svalur hehehehe.  

Annars kveð ég að sinni þar sem ég hef ekkert meira að segja nema það að ég er bara að fara að skunda á æfingu. Bið að heilsa öllum heima.

Kær kveðja Arnar Glottandi

Andrea Björk Hannesdóttir
4 athugasemdir

Letidagur í DK

10. september 2008 klukkan 16:56
Já núna ætlar Andrea litla að blogga aðeins.

Það er búið að vera rosalega fínt hjá okkur undafarna daga. Ekkert svo mikið að frétta svosem.. en ég vil samt telja upp nokkra hluti sem við erum búin að vera að gera undafarið.

Ég er komin með vinnu í dýrabúðinni Söhesten. Fyrst byrja ég í hlutastarfi en svo byrja ég í fullu starfi ca. 15. nóvember. Ég er s.s. að fara að taka við af konu sem fer í barneignarleifi í nóvember og það getur vel verið að það verði fyrr því að hún er strax orðin þreytt í hnjánum. Þangað til ætla ég að fá mér vikar vinnu. Vikar er skrifstofa sem maður getur skráð sig í vinnu hjá. Svo hringja þeir í mann ef að einhverjum vantar starfskraft og maður fær svona verkefni í nokkra daga. Það gæti verið spennandi.. þetta er alls konar vinnur allt frá þrifum til jah.. veit ekki.. bara eitthvað! haha

Arnar er núna á fullu í handboltanum. Hann er byrjaður að æfa með Kolding handboltaliðinu sem er mjög sterkt lið hérna í Danmörku. Í fyrra lentu þeir í 5. sæti í deildinni. Hann fer líka mjög líklega að þjálfa krakka og KFUM og Kolding liðið rífast um hann.. 

Mér leiðist nú samt ekkert mikið þegar Arnar er á fullu því að ég hef sem BETUR FER  Sunnu og Hvata! Sunna er alltaf búin í skólanum eftir hádegi svo að þegar mér leiðist þá fer ég bara til Sunnu :D

Við erum ekki enn komin með netið svo að ég get ekki sett inn myndir strax, en  það er verið að vinna í þeim málum.

Við hjálpuðum íslenskri fjölskyldu að flytja inn um daginn og þá gáfu þau okkur risastóran örbylgjuofn! Það munar rosalega fyrir okkur að þurfa ekki að kaupa einn slíkan! Við erum rosalega þákklát fyrir þetta.

Svo er klakamót núna um helgina, þá fara nokkrir íslenskir strákar frá Kolding (þar á meðal er Arnar og Hvati) til Árhúsa að keppa í fótbolta. Það er reyndar ekki alveg víst hvort að þeir nái í lið því að allir eru að beila en við vonum það besta! Það eru víst allar konur bannaðar þannig að við stelpurnar ætlum bara að hafa stelpukvöld og horfa á væmnar myndir! Get ekki beðið hahaha!

Ég finn að danskan er að koma! Maður er alveg ótrúlega fljótur að ná henni. Ég ætla samt að fara í dönskuskóla til að flýta þessu fyrir, enda kostar það sama og ekkert og þá hef ég eitthvað að gera.

Þið megið alls ekki misskilja, mér líður rosalega vel í Danmörku en ég er bara ekki að gera neitt sérstakt svona á daginn svona fyrst en ég er að fá vinnu við akkurat það sem mig langaði og ég get ekki beðið eftir að fara að vinna. Þetta verður allt geggjað gaman :) 

En ég byð að heilsa öllum og ég vona að Íslandi gangi vel á móti Skotlandi.. við getum ekki horft á leikinn..

Elska ykkur öll
kv Andrea Björk
Andrea Björk Hannesdóttir
6 athugasemdir

Ég á afmæli í dag!

03. september 2008 klukkan 17:07
Ég get allt ég á afmæli í dag ég nenni ekki neinu. Ég er tvítugur í dagSvalur. Já einhvernveginn svona hljómar textinn í á móti sól laginu. En ég er tvítugur í dag og það er hreint út sagt alveg frábært. Í dag vakti Andrea mig með geggjuðum pakka þar sem var bæði rauði íslandsbúningurinn í og Kolding treyjan (enda eru þær alveg eins). Síðan fékk ég alveg heilan helling og eiginlega alltof mikið af pökkum, fékk meira að segja pakka frá Sunnu og Hvata. Ég ætla hér að þakka Andreu BESTU kærustu í heimi og Sunnu og Hvata enn og aftur fyrir mig ;* Þetta er samt ekki allt þau bökuðu meira að segja handa mér köku, og hringdu í handboltaliðið hér í Kolding og sögðu þeim að ég væri að fara að mæta á æfingu hjá þeim á morgun (Andrea átti sko hugmyndina af því) Þau eru alveg ótrúleg og ég á sko klárlega bestu  kærustu í heimi, takk aftur ástin mín ;*

Ég fékk sko fimm pakka frá Andreu hún er alveg milljón Hlæjandi . Frá Andreu fékk ég treyjuna, takkaskó, fína skó, fótbolta, sokka og brúsa og frá Sunnu og Hvata fékk ég ótrúlega flotta hettupeysu (sokkarnir og brúsinn voru sko saman í pakka). Nú þurfum við að lifa á vatni og brauði þar sem eftir er hehe Hlæjandi. Ég vil líka þakka öllum þeim sem að sendu mér kveðju bæði netleiðis, í gegnum sms eða janfvel hringdu. Ég met þessar kveðjur mjög mikils þar sem ég sakna ykkar allra og það hlýjar mér um hjarta rætur þegar að maður heyrir í fjarstöddum ættingjum og vinum.

Annars er bara allt gott gott að frétta og allir hér eru alveg frábærir. Mér er búið að líða eins og kóngi hér í Danmörku í dag og varla hægt að biðja um neitt meira. Svo erum við að fara út að borða núna.

Kveðja Arnar Ragnarsson Svalur



Andrea Björk Hannesdóttir
5 athugasemdir

Í Árhus

30. ágúst 2008 klukkan 19:15
Já í dag fórum við í ferð til Árhus og fórum að kaupa inn í Ikea. Stóru hlutirnir sem við keyptum voru til dæmis rúm, hillur, eldhúsborð og stólar. Síðan keyptum við voða fínan start pakka sem er með öllu í hvað varðar eldhúsið. Panna, pottur sleifar, hnífar, geymslubox og fleira og fleira gott Hlæjandi. Já svo að þessi dagur tók aðeins á þar sem við fórum líka að rölta niður miðbæinn í Árhus.

Í gær fórum við að spila Nintendo Wii og shjitt ertu ekki að grínast hvað þetta er gaman Brosandi. Ég hefði ekki trúað þessu, þetta er bara eins og að vera í tennis, keilu, golfi  og hafnarbolta í stofunni. Þetta er alveg magnað.

Ég fékk mjög góðar viðtökur hjá KFUM hér í Kolding og þeir ætla að hringja í mig á mánudaginn. Í bíð sveittur á efrivörinni þangað til. Andrea er líka búin að tala við nokkrar dýrabúðir og þær munu láta okkur vita ef eitthvað losnar. Ég ætla að sjá hvað þeir segja á mánudaginn og leita síðan víðar ef dræmar viðtökur fást. Þá mun ég líklegast sækja um í öllum íþróttabúðum staðarins sem er ekki slæmt. Ínæstu viku mun í líka kaupa mér kort í ræktina sem er hræ billigt. Nú verður tekið á því takk fyrir bingó    spik bless Glottandi.

En ég ætla ekki að eiga afmæli við þetta svo að hér mun ég hætta í bili Hlæjandi

Kær kveðja heim á klakann og til Palestínu Glottandi

Arnar RagnarssonSvalur
Andrea Björk Hannesdóttir
4 athugasemdir

Við erum komin með íbúð!! :D

25. ágúst 2008 klukkan 18:52
Jæja jæja!

Við erum bara komin með íbúð í Kolding! Hún er á rosalega góðum stað, mjög stutt frá Sunnu og Hvata og er rosalega vel farin og nýleg.

Við tókum reyndar ekki myndir af henni en það eru myndir á netinu sem eru af svipaðri íbúð.. http://www.violvejkolding.dk/page_1203331569014.html þessi sem er 41 fermetri..

Endilega kíkið á linkinn og við munum setja inn myndir þegar við megum fara aftur og taka mál af allri íbúðinni til að kaupa mublur í hana.. við flytjum inn á mánudaginn svo að við förum til Århus um helgina til að versla í IKEA og fáum allt sent heim í Kolding.

Heimilsfangið er
Violvej 904
6000 Kolding
Denmark

Brosandi Jeyj! Núna getið þið sent okkur póst haha og já.. komið í heimsókn! Hlæjandi

Það er nú ekkert meira búið að gerast í dag.. en ég held að þetta sé nú góður árangur á einum degi! Skoðuðum 6 íbúðir og okkur lýst bara svo vel á Violvej að við ætlum ekkert að vera að slugsa við þetta og við sögðum bara já og amen!

Annars vil ég óska strákunum okkar til hamingju með silfrið :) við spiluðum nú ekki okkar besta handbolta í úrslitaleiknum en við getum verið stolt af okkar árangri.

En ég vil ekki hafa þetta lengra! Ég skrifa meira seinna :)
Kv. Andrea Björk
Andrea Björk Hannesdóttir
9 athugasemdir